[ ]

Mynd: Heiðar Marteinsson

hluti af Samfélaginu

Hornsteinn í heimabyggð

Ísfélagið leitast við að stuðla að og styðja við uppbyggingu í nærsamfélögum sínum með margvíslegum stuðningi við góð málefni. Með því vill félagið stuðla að aukinni velferð starfsmanna, samfélagsins, viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila. Áherslur Ísfélagsins er að styrkja íþrótta- og æskulýðsmál ásamt björgunar- og líknarmál.

Æskulýðsmál

Félagið hefur þá stefnu að styrkja og styðja við æskulýðsmál í nærsamfélagi sínu. Félagið styrkir ma. FabLab, nýsköpunarverkefni, Lúðrasveit Vestmannaeyja o.fl.

Björgunarmál

Starfsmenn Ísfélagsins treysta á rétt viðbrögð við slysum eða alvarlegum veikindum um boð í skipum félagsins. Björgunarsveitir og styrkur þeirra er því gríðarlega mikilvægur. Ísfélagið styður við bakið á Björgunarsveit Vestmannaeyja og Björgunarsveitinni Hafliða á Þórshöfn. 

Íþróttir

Öflugt íþróttastarf er forsenda þess að tryggja börnum og unglingum jákvætt og gott uppeldi og eflir samfélagið í heild sinni. Félagið styrkir íþróttastarf ÍBV og Ungmannafélag Langanesbyggðar. Félagið hefur einnig stutt við Fimleikadeild ÍBV, Taflfélag Vestmannaeyja, Golfklúbb Vestmannaeyja, Rafíþróttafélag ÍBV o.fl. Félagið hefur einnig styrkt afreksíþróttafólk.

SAMFÉLAGS- OG MENNINGARMÁL​

Ísfélagið hefur tekið þátt í mörgum smáum sem stórum samfélags- og menningaverkefnum í nærsamfélagi sínu. Má það nefna Káta daga á Þórshöfn, barnadagskrá á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum, MATEY sjávarréttarhátíð og hefur Ísfélagið ma. sett upp styttu af Ása í Bæ, einum ástsælasta laga- og ljóðahöfundi Vestmannaeyja.

Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga

fylgdu okkur

© 2022 ÍSFÉLAG HF.

is_ISIS