[ ]

Mynd: Sigurgeir Jónasson

Ísfélag hf.

Ísfélag hf. var stofnað 1. desember 1901 og er elsta starfandi hlutafélag landsins. Félagið er með starfsemi í Vestmannaeyjum, á Siglufirði og á Þórshöfn. Hlutverk félagsins er að stunda veiðar og framleiða hágæða afurðir úr bolfiski og uppsjávarfiski. Áhersla félagsins er að stunda ábyrgar veiðar og vinnslu í sátt við samfélagið og umhverfið.

starfsstöðvar félagsins

Kort af Íslandi

Mynd: Valdís Óskarsdóttir

Sjálfbær matvælaframleiðsla

Helstu afurðir félagsins eru fiskimjöl, lýsi, ásamt frystum og ferskum bolfiskafurðir. Í allri vinnslu félagsins er fylgt eftir stöngum gæðamarkmiðum og starfsreglum sem byggðar eru á áhættuþáttagreiningu (HACCP).  

Ferskar og frosnar bolfiskafurðir eru aðallega seldar til Frakklands, Spánar, Englands og Bandaríkjanna. Frosnar uppsjávarafurðir eru einkum seldar til Póllands, Úkraínu, Hvíta-Rússalands, Kína og Japan. Mjöl og lýsi er selt til framleiðenda laxafóðurs í Noregi og Skotlandi. Afurðir félagsins eru að miklu leyti seldar af Iceland Pelagic ehf. og Stormar ehf., sem eru sölufyrirtæki sem Ísfélagið á með öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum.

Öll vinnsla félagsins byggir á stöngum kröfum um framleiðslu úrvals matvöru til manneldis og kröfum um sjálfbærni. Virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar er grundvöllur starfsemi okkar og við leggjum áherslu á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar svo komandi kynslóðir geti notið hennar áfram.

Matvælaframleiðslan

Í Vestmannaeyjum er rekið öflugt frystihús sem er sérhæft til vinnslu á uppsjávarafla. Frystigetan í húsinu er rúm 500 tonn á sólarhring. Á milli uppsjávarvertíða er unninn bolfiskur í frystar og ferskar afurðir. Framleiðslustjóri frystihússins er Björn Brimar Hákonarson.

Í Vestmannaeyjum er einnig framleitt fiskimjöl úr loðnu, síld, makríl og kolmunna í fiskimjölsverksmiðju félagsins. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er um 1.200 tonn af hráefni á sólarhring. Verksmiðjustjóri er Páll Scheving Ingvarsson og þar starfa um 20 manns. 

Á Þórshöfn er rekið öflugt frystihús þar sem unninn er bolfiskur og uppsjávarfiskur. Bolfiskvinnslan byggist á þorsk- og ufsavinnslu.  Framleiðslustjóri frystihússins er Siggeir Stefánsson.

Á Þórshöfn er einnig framleitt fiskimjöl úr loðnu, síld og makríl í fiskimjölsverksmiðju félagsins. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er um um 900 tonn af hráefni á sólarhring. Verksmiðjustjóri er Rafn Jónsson.

Á hafnarsvæðinu á Siglufirði er rekin nýleg rækjuverksmiðja sem framleiðir soðna og pillaða kaldsjávarrækju. Hluti af hráefni hennar er fersk rækja sem landað er á Siglufirði og hluti er keyptur frosinn frá norskum og kanadískum skipum. Mikil áhersla er lögð á vöruvöndun og hreinlæti í verksmiðjunni og uppfyllir hún gæðastaðla margra af helstu smásölukeðjum í Bretlandi auk þess að vera með BRC samþykki. Gott skráningarkerfi tryggir rekjanleika frá veiðum til vinnslu.

 

Mynd: Valdís Óskarsdóttir

Mynd: Sigurgeir Jónasson

Veiðar

Félagið gerir út fjögur uppsjávarskip, einn frystitogara, þrjú bolfiskiskip og einn krókabát. Félagið leggur áherslu á gott viðhald og umhirðu skipanna og leitast við hafa aðbúnað og öryggisbúnað fyrir áhafnir sem bestan. Félagið hefur á að skipa úrvals starfsmönnum með mikla og víðtæka reynslu.

skipurit

Stjórn og stjórnendur

Stjórn

Einar er fæddur þann 23. ágúst árið 1977 í Reykjavík. Einar tók sæti í stjórn félagsins árið 2013. Einar hefur lokið BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Ísland og MBA námi. Einar starfar fyrir Kristinn ehf. og tengd félög. Einar er stjórnarformaður Korputorgs ehf. og Myllunar-Ora ehf. Einar á engan beinan hlut í félaginu sjálfur, en á 22,12eignarhlut í fjölskyldufyrirtækinu Fram ehf. sem er eini hluthafi ÍV fjárfestingafélags ehf., sem á um 57,7% í félaginu. Einar er jafnframt þriðjungseigandi í MKE ehf. sem á um 0,26% af hlutafé í Ísfélagi (0,27% miðað við atkvæðisrétt). Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Einar háður félaginu og daglegum stjórnendum þess og stórum hluthafa. 

Guðbjörg er fædd þann 14. mars 1952 í Reykjavík. Guðbjörg hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2001. Hún lauk prófi frá Kennaraháskólanum árið 1976. Guðbjörg situr í stjórn Fastus ehf. og Kaaber-Ísam ehf. Guðbjörg á beint 43.623 hluti í félaginu og á 11,29eignarhlut í fjölskyldufyrirtækinu Fram ehf. sem er eini hluthafi ÍV fjárfestingafélags ehf., sem aftur á 472.877.741 hluti í útgefanda eða sem nemur um 57,7% af skráðu hlutafé hans. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti er Guðbjörg óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess, en telst háð stórum hluthafa. 

Gunnar Sigvaldason er fæddur 1938. Hann er með Verslunarpróf frá Verslunarskóla  Íslands. Hann var framkvæmdastjóri Valbergs ehf. frá árinu 1961 til 2000 og framkvæmdastjóri Sæbergs  hf. frá 1974 til 1997. Gunnar hefur verið stjórnarformaður Ramma hf. frá árinu 2009 og var  framkvæmdastjóri félagsins frá 1997 til 2009. Hann situr í stjórn Sölku fiskmiðlunar hf., Atlas hf. og í  dótturfélagi Ramma hf., Primex ehf. Gunnar hefur engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins. Gunnar er eigandi 52.743.201 hluta í útgefanda eða sem nemur 6,44%. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Gunnar óháður félaginudaglegum stjórnendum þess sem og stórum hluthöfum.

Steinunn H. Marteinsdóttir, stjórnarmaður, er fædd 1966. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og með Diplomanám í ferðamálafræði. Steinunn starfar nú hjá Premium ehf. lífeyrisþjónustu eða frá árinu 2012. Hún vann við hárgreiðslustörf frá árunum 1990 til 2002 þar sem hún átti og rak um tíma hárgreiðslustofu. Á árunum 2004 – 2012 vann hún hjá Sparisjóðnum Afl/Arion banka. Steinunn situr í stjórn Þjóðlagaseturs séra Bjarna Þorsteinssonar og hefur verið eigandi Kjólakistunnar ehf. frá 2014. Steinunn á engan hlut í útgefanda en aðilar sem Steinunn tengist fjölskylduböndum eiga 95.145.581 hluti í útgefanda, eða sem nemur 11,62%, í gegnum Martein Haraldsson ehf. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Steinunn háð félaginu, daglegum stjórnendum þess sem og háð stórum hluthöfum. 

Sigríður er fædd 1983 og er framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Sjóvá. Sviðið ber ábyrgð á innheimtu, reikningshaldi, upplýsingatækni og viðskiptagreind. Sigríður Vala er með M.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Sigríður Vala var forstöðumaður hagdeildar Sjóvá árin 2016-2021 ásamt því að sitja í fjárfestinganefnd félagsins. Sigríður Vala starfaði hjá Creditinfo árin 2015-2016 sem forstöðumaður viðskiptastýringar og 2008-2015 í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Sigríður Vala sat í stjórnum HS Veitna hf. 2014-2022 og SÝN hf. 2019-2022. Sigríður Vala situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Sigríður óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess sem og stórum hluthöfum. 

Framkvæmdastjórn

Stefán Friðriksson, forstjóri. Hann er fæddur 1963. Stefán er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur verið forstjóri Ísfélagsins frá því í febrúar 2010. Áður starfaði hann hjá Vinnslustöðinni hf. Frá 1997 til og 2010 og hjá Fiskistofu 1992 til 1997. Stefán er eigandi alls hlutafjár í Guddunefi ehf. sem á 1.080.000 hluti í útgefanda eða sem svarar til 0,13% af hlutafé hans 

Ólafur H. Marteinsson, aðstoðarforstjóri er fæddur árið 1959, og hefur verið framkvæmdastjóri Ramma hf. frá árinu 1991. Ólafur hefur skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og er Útgerðartæknir frá Tækniskóla Íslands. Ólafur er formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFSÓlafur er eigandi 26,11% hlutafjár í Marteini Haraldssyni ehf. sem á 95.145.581 hluti í útgefanda eða sem svarar til 11,62% af skráðu hlutafé hans. 

Unnar Pétursson, fjármálastjóri, er fæddur 1965. Unnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur verið fjármálastjóri Ramma hf. frá 1993.  Unnar er eigandi alls hlutafjár í Karlsbergi ehf. sem á 6.575.074 hluti í útgefanda. eða sem svarar til 0,8% af skráðu hlutafé hans. 

Örvar Guðni Arnarson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, er fæddur árið 1976. Örvar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hann var fjármálastjóri Ísfélags Vestmannaeyja frá 2011-2023. Örvar er eigandi alls hlutafjár í L21 ehf. sem á 540.000 hluti í útgefanda, eða sem svarar til 0,07% af skráðu hlutafé hans.

Merki félagsins

Sækja má merki félagsins í PNG og PDF formi hér. PDF formið inniheldur RGB, CMYK, og PANTONE..

Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga

fylgdu okkur

© 2022 ÍSFÉLAG HF.