[ ]

Mynd: Sigurgeir Jónasson

fólkið í Ísfélaginu

Starfsfólk Ísfélagsins, á sjó og í landi, leggur grunninn að verðmætum félagsins með þeirri miklu og fjölbreyttu þekkingu og reynslu sem í því býr. Lögð er áhersla á að hjá félaginu starfi hæft og traust starfsfólk, sem sinni störfum sínum af fagmennsku og ábyrgð og tryggi þannig sjálfbæra nýtingu og hagkvæmni í rekstri.

Félagið leggur áherslu á að starfsumhverfi sé öruggt og starfsfólk hafi þau tæki og tól sem þarf til að skila góðu starfi og framleiða hágæða afurðir fyrir neytendur. Félagið hefur virkar öryggisnefndir og leggur áherslu á fræðslu starfsfólks í öryggismálum og umgengni við afurðirnar.  

Ísfélagið hefur öðlast jafnlaunavottun og sett sér jafnlaunastefnu og jafnréttisstefnu. Hjá félaginu er lögð áhersla á að kyn skipti ekki máli og allir eigi sama rétt og fái sömu tækifæri óháð kyni.  

Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga

fylgdu okkur

© 2022 ÍSFÉLAG HF.

is_ISIS