[ ]
Mynd: Valdís Óskarsdóttir
Í Vestmannaeyjum er starfrækt öflugt frystihús sem sérhæft er til framleiðslu á uppsjávarafurðum. Á milli uppsjávarvertíða er unnin bolfiskur í ferskar og frystar afurðir. Fjöldi starfsmanna fer eftir vertíðum en að jafnaði eru um 60 ársverk í frystihúsinu. Frystihúsið er staðsett á mótum Garðavegar og Strandvegar.
Við hinn enda Strandvegar starfrækir félagið öfluga fiskimjölsverksmiðju þar sem framleitt er fiskimjöl og lýsi úr loðnu, síld, makríl og kolmunna. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er 1.200 tonn af hráefni á sólarhring.
Á milli frystihússins og fiskimjölsverksmiðjunnar eru lagnir sem lagðar voru árið 2013 og er loðnuhrognum dælt beinustu leið úr hrognahúsinu við fiskimjölsverksmiðjuna yfir í frystihúsið þar sem þeim er pakkað eftir þurrkun. Hausum og afskurði frá frystihúsinu er sömuleiðis dælt með öðrum lögnum til baka í fiskimjölsverksmiðjuna sem nýtir hráefnið í vinnslu á mjöli og lýsi.
Við fiskimjölsverksmiðjuna var árið 2013 tekið í notkun ein öflugasta hreinsistöð í fiskvinnslu á Íslandi. Í henni er allt blóðvatn hreinsað og síðan unnið úr því lýsi og mjöl. Þetta á við um allt frárennsli sem kemur bæði frá frystihúsi félagsins og fiskimjölsverksmiðjunni.
Á Þórshöfn er rekið öflugt frystihús þar sem unnin er bolfiskur og uppsjávarfiskur. Bolfiskvinnsla félagsins á Þórshöfn byggir á þorsk- og ufsavinnslu, ennfremur er öflug vinnsla á síld og makríl í frystihúsinu. Þaðan er oft stutt á uppsjávarmiðin og fer loðnan sem dæmi framhjá Langanesi á leið sinni til hrygningar og liggur því Þórhöfn vel við veiðum í upphafi loðnuvertíðar. Uppbygging og þróun vinnslubúnaðar hefur verið mikil á undanförnum árum og eru þar framleiddar hágæða afurðir sem uppfylla óskir kaupenda um meðhöndlun, gæði og pökkun á afurðum. Ársverk í frystihúsinu eru um 70. Á Þórshöfn starfrækir félagið afkastamikla fiskimjölsverksmiðju þar sem framleitt er mjöl og lýsi úr loðnu, síld og makríl og er framleiðslugeta verksmiðjunnar um 900 tonn á sólarhring. Ársverk í verksmiðjunni eru um 20.
Á hafnarsvæðinu á Siglufirði er rekin nýleg rækjuverksmiðja sem framleiðir soðna og pillaða kaldsjávarrækju. Hluti af hráefni hennar er fersk rækja sem landað er á Siglufirði og hluti er keyptur frosinn frá norskum og kanadískum skipum. Mikil áhersla er lögð á vöruvöndun og hreinlæti í verksmiðjunni og uppfyllir hún gæðastaðla margra af helstu smásölukeðjum í Bretlandi auk þess að vera með BRC samþykki. Gott skráningarkerfi tryggir rekjanleika frá veiðum til vinnslu. Helstu markaðir fyrir kaldsjávarrækju eru í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Allri rækjuskel sem til fellur við framleiðsluna er dælt beint til líftæknifyrirtækisins Primex hf. sem er er dótturfyrirtæki Ísfélagsins en fyrirtækið framleiðir lífvirkar kítósantrefjar úr rækjuskel á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt. Ársverk tengd rækjuverksmiðjunni eru 20 og hjá Primex eru líka 20 ársverk.
Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga