[ ]

Mynd: Kristinn Benediktsson

Afurðir

Afurðir félagsins eru seldar um allan heim en helstu markaðir eru í Evrópu og Asíu. Ferskar og frosnar bolfiskafurðir eru aðallega seldar til Frakklands, Spánar, Englands og Bandaríkjanna. Uppsjávarafurðir eru einkum seldar til Póllands, Úkraínu, Hvíta-Rússlands, Kína og Japan. Mjöl og lýsi er selt til framleiðenda laxafóðurs í Noregi og Skotlandi. 

Afurðir félagsins eru að miklu leyti seldar af Iceland Pelagic ehf. og Stormar ehf., sölufyrirtækja sem Ísfélagið á ásamt öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum. 

Þorskur

Þorskur er straumlínulaga fiskur, hausstór og kjaftstór með skeggþráð á höku sem hann notar til fæðuleitar. Þyngd og stærð þorsks er mjög mismunandi eftir hafsvæðum. Þorskurinn er algengur allt í kringum Ísland.  

Fyrir ferskar og frosnar afurðir vinsamlegast hafið samband við Björn Brimar Hákonarson

Fyrir frosnar og léttsaltaðar afurðir vinsamlegast hafið samband við Siggeir Stefánsson

ýsa

Ýsa er straumlínulaga, þéttvaxin með stór augu. Ýsan er algeng allt í kringum Ísland en leitar í hlýja sjóinn við suður og suðvesturströnd landsins. 

Vinsamlegast hafið samband við Björn Brimar Hákonarson til að fá nánari upplýsingar.

ufsi

Ufsi er straumlínulaga, frammjór og neðri skoltur teygist fram fyrir þann efri. Ufsinn er allt í kringum Ísland en sækir helst í hlýja sjóinn við suður og suðvesturströnd landsins.

Vinsamlegast hafið samband við Björn Brimar Hákonarson eða Siggeir Stefánsson til að fá nánari upplýsingar.

LOÐNA
Loðna er smávaxinn uppsjávarfiskur sem dregur nafn sitt af því að rákin eftir endilöngum fisknum er loðin. Loðnan finnst á kaldtempruðum hafsvæðum jarðar meðal annars í kringum Ísland og við austurströnd Grænlands. Loðnan er torfufiskur sem getur myndað gríðarlega stórar hrygningatorfur. Vöruframboð loðnu má sjá hér, vin­samlegast hafið samband við sölumenn Iceland Pelagic til að fá nánari upplýsingar.
MAKRÍLL

Makríll er hraðsyndur uppsjávarfiskur sem finnst í Norður-Atlantshafi. Veiðitímabil makrílsins hefst þegar vora tekur en þá safnast hann saman í torfur og færir sig nær landi, til hrygningar og fæðu­öflunar þar sem sjávarhiti er milli 11-14°C. Í leit að æti fer makríllinn í göngur norður um Noregshaf, norður með Noregi og síðustu ár til Íslands en makrílgöngur hafa tekið miklum breytingum undanfarin ár og er breytt göngumynstur talið orsakast af hlýnun sjávar.

Vöruframboð makríls má sjá á hér, vinsamlegast hafið samband við sölumenn Iceland Pelagic til að fá nánari upplýsingar.

SÍLD

Síld er uppsjávarfiskur og er ein algengasta fisktegundin á norður­hveli jarðar. Heimkynni síldarinnar eru í austanverðu Atlantshafi. Síldin er oft kölluð silfur hafsins vegna þeirra miklu verðmæta sem hún skapaði íslensku þjóðinni á síðustu öld.

Vöruframboð síldar má sjá hér, vinsamlegast hafið samband við sölumenn Iceland Pelagic til að fá nánari upplýsingar.

LOÐNUHROGN

Loðnan hrygnir frá seinnihluta febrúar og hrygningu lýkur yfirleitt í kringum mánaðarmótin mars-apríl. Helstu hrygningarsvæði hérlendis eru með suður- og vestur­ströndinni.

Til að fá  nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við sölumann loðnu­hrogna, Björn Brimar Hákonarson.

FISKIMJÖL

Fiskimjöl Ísfélagsins er framleitt úr loðnu, makríl, síld og kolmunna. Fiskimjöl er unnið úr öllu hráefni sem ekki er nýtt til manneldis og er góður próteingjafi í dýrafóður.

Til að fá nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Stefán Friðriksson.

LÝSI

Lýsi er framleitt úr loðnu, makríl, síld og kolmunna. Lýsi er unnið úr öllu hráefni sem ekki er nýtt í fiskvinnslunni og er góður orkugjafi í fiskifóður. Fiski­mjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum er með vottun á lýsisframleiðslu til manneldis.

Til að fá nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Stefán Friðriksson.

Iceland Pelagic er íslenskt sölufyrirtæki í sameiginlegri eigu Ísfélags, Skinneyjar-Þinganess og Brims. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á uppsjávarafla frá fyrirtækjunum. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru á Höfn og í Hafnarfirði. 

Stærstu markaðir félagsins eru í Austur-Evrópu.

Stormar er í eigu Brims, Gjögurs, Ísfélags og Skinneyjar – Þinganess.  Hlutverk félagsins er að annast sölu og útflutning á bolfiskafurðum eigenda.  Starfsstöðvar félagsins eru á Höfn í Hornafirði og í Frakklandi.

Frakkland er mikilvægasti markaður félagsins en einnig fer talsvert af afurðum til Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada og Spánar. 

Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga

fylgdu okkur

© 2022 ÍSFÉLAG hF.

is_ISIS