[ ]

Mynd: Tryggvi Gunnarsson

Útgerð Ísfélags hf.

Útgerð félagsins samanstendur af níu skipum. Um 180 sjómenn starfa hjá útgerðinni á hverjum tíma.  

Uppsjávarskip

ÁLSEY VE 2

Álsey er uppsjávarskip sem var smíðað hjá Fitjar Mesk í Verksted í Noregi árið 2003. Skipið er 68,8 m. á langt, 13,8 m. á breidd og 1.936 BT. Skipstjóri er Sigurður Konráðsson. Yfirvélstjóri er Þorfinnur Hjaltason.

HEIMAEY VE 1

Heimaey er uppsjávarskip sem var smíðað af Karsensen Skibsværft í Danmörku árið 2017. Skipið er 78,65 m. langt, 15,5 m. breitt og 2.935 BT. Skipstjóri er Ólafur Einarsson og yfirvélstjóri er Ágúst Halldórsson. 

SIGURÐUR VE 15

Sigurður er uppsjávarskip sem var smíðað hjá Celiktrans í Tyrklandi árið 2014.  Skipið er 80,3 m.  langt, 17 m.  breitt og 3.763 BT. Skipstjórar eru Jóhannes Danner og Jón Axelsson. Yfirvélstjóri er Baldvin Sigurbjörnsson. 

SUÐUREY VE 11

Suðurey er uppsjávarskip sem var smíðað hjá Karstensen í Danmörku 2006. Skipið er 62,6 m. langt, 12,8 m. breidd og 1337 BT. Skipstjóri er Pétur Andersen og yfirvélstjóri er Björgvin Hlynsson. 

frystitogari

SÓLBERG ÓF 1

Sólberg er frystitogari sem smíðaður var hjá Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi árið 2017. Skipið er 79,8 m. að lengd, 15,4 m. á breidd og 3719 BT. Skipstjórar eru Sigþór Kjartansson og Einar Númason. Yfirvélstjórar eru Haukur Magnússon og Valdimar Tryggvason. 

Bolfiskskip

DALA-RAFN SI 508

.Dala-Rafn er bolfiskskip sem var smíðað í Póllandi árið 2007. Skipið er 29 m. langt, 10,4 m. breitt og 485 BT.

sigurbjörg VE 67

Sigurbjörg er bolfiskskip sem var smíðað hjá Celektrans í Istanbul, Tyrklandi 2024. Skipið er 44,82m langt og 14m breitt og 1678 BT. Skipstjórar eru Sævar Guðjónsson og Sigurður Konráðsson. Yfirvélstjóri er Þorfinnur Hjaltason.

Krókabátur

LITLANES ÞH 3 ​

Litlanesið er krókabátur sem var smíðaður í Sandgerði árið 2008. Báturinn er 12 m. langur, 4 m. breiður og 17 BT. Skipstjóri er Baldur Reynir Hauksson.    

staðsetning flotans

Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga

fylgdu okkur

© 2022 ÍSFÉLAG HF.

is_ISIS