[ ]
Mynd: Sigurgeir Jónasson
Ísfélag hf. var stofnað 1. desember 1901 og er elsta starfandi hlutafélag landsins. Félagið er með starfsemi í Vestmannaeyjum, á Siglufirði og á Þórshöfn. Hlutverk félagsins er að stunda veiðar og framleiða hágæða afurðir úr bolfiski og uppsjávarfiski. Áhersla félagsins er að stunda ábyrgar veiðar og vinnslu í sátt við samfélagið og umhverfið.
Í Vestmannaeyjum má finna höfuðstöðvar félagsins, fiskvinnslu og fiskimjölsverksmiðju.
Tangagata 1, 900 Vestmannaeyjar
Sími: 488-1100
Starfsfólk skrifstofu
Starfsfólk útgerðar
Strandvegur 102, 900 Vestmannaeyjar
Sími: 488-1100
Starfsfólk fiskvinnslu
Strandvegur 14, 900 Vestmannaeyjar
Sími: 488-1100
Starfsfólk fiskismjölsverksmiðju
Á Siglufirði er staðsett skrifstofa og rækjuvinnsla.
Gránugata 1-3 1R, 580 Siglufjörður
Sími: 460-5500
Starfsfólk skrifstofu
Starfsfólk útgerðar
Gránugata 1-3 1R, 580 Siglufjörður
Sími: 460-5500
Starfsfólk rækjuvinnslu
Á Þórshöfn er staðsett fiskvinnsla og fiskimjölsverksmiðja
Langanesvegur 1, 680 Þórshöfn
Sími: 488-1100
Starfsfólk fiskvinnslu á Þórshöfn
Hafnarvegur 2, 680 Þórshöfn
Sími: 488-1100
Starfsfólk fiskimjölsverksmiðju
Í Þorlákshöfn má finna eitt af starfssvæðum félagsins.
Óseyrarbraut 20, 815 Þorlákshöfn
Sími: 460-5599
Starfsfólk
Mynd: Valdís Óskarsdóttir
Helstu afurðir félagsins eru fiskimjöl, lýsi, ásamt frystum og ferskum bolfiskafurðir. Í allri vinnslu félagsins er fylgt eftir stöngum gæðamarkmiðum og starfsreglum sem byggðar eru á áhættuþáttagreiningu (HACCP).
Ferskar og frosnar bolfiskafurðir eru aðallega seldar til Frakklands, Spánar, Englands og Bandaríkjanna. Frosnar uppsjávarafurðir eru einkum seldar til Póllands, Úkraínu, Hvíta-Rússalands, Kína og Japan. Mjöl og lýsi er selt til framleiðenda laxafóðurs í Noregi og Skotlandi. Afurðir félagsins eru að miklu leyti seldar af Iceland Pelagic ehf. og Stormar ehf., sem eru sölufyrirtæki sem Ísfélagið á með öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum.
Öll vinnsla félagsins byggir á stöngum kröfum um framleiðslu úrvals matvöru til manneldis og kröfum um sjálfbærni. Virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar er grundvöllur starfsemi okkar og við leggjum áherslu á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar svo komandi kynslóðir geti notið hennar áfram.
Í Vestmannaeyjum er rekið öflugt frystihús sem er sérhæft til vinnslu á uppsjávarafla. Frystigetan í húsinu er rúm 500 tonn á sólarhring. Á milli uppsjávarvertíða er unninn bolfiskur í frystar og ferskar afurðir. Framleiðslustjóri frystihússins er Björn Brimar Hákonarson.
Í Vestmannaeyjum er einnig framleitt fiskimjöl úr loðnu, síld, makríl og kolmunna í fiskimjölsverksmiðju félagsins. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er um 1.200 tonn af hráefni á sólarhring. Verksmiðjustjóri er Páll Scheving Ingvarsson og þar starfa um 20 manns.
Á Þórshöfn er rekið öflugt frystihús þar sem unninn er bolfiskur og uppsjávarfiskur. Bolfiskvinnslan byggist á þorsk- og ufsavinnslu. Framleiðslustjóri frystihússins er Siggeir Stefánsson.
Á Þórshöfn er einnig framleitt fiskimjöl úr loðnu, síld og makríl í fiskimjölsverksmiðju félagsins. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er um um 900 tonn af hráefni á sólarhring. Verksmiðjustjóri er Rafn Jónsson.
Á hafnarsvæðinu á Siglufirði er rekin nýleg rækjuverksmiðja sem framleiðir soðna og pillaða kaldsjávarrækju. Hluti af hráefni hennar er fersk rækja sem landað er á Siglufirði og hluti er keyptur frosinn frá norskum og kanadískum skipum. Mikil áhersla er lögð á vöruvöndun og hreinlæti í verksmiðjunni og uppfyllir hún gæðastaðla margra af helstu smásölukeðjum í Bretlandi auk þess að vera með BRC samþykki. Gott skráningarkerfi tryggir rekjanleika frá veiðum til vinnslu.
Mynd: Valdís Óskarsdóttir
Mynd: Sigurgeir Jónasson
Félagið gerir út fjögur uppsjávarskip, einn frystitogara, þrjú bolfiskiskip og einn krókabát. Félagið leggur áherslu á gott viðhald og umhirðu skipanna og leitast við hafa aðbúnað og öryggisbúnað fyrir áhafnir sem bestan. Félagið hefur á að skipa úrvals starfsmönnum með mikla og víðtæka reynslu.
Einar er fæddur þann 23. ágúst árið 1977 í Reykjavík. Einar tók sæti í stjórn félagsins árið 2013. Einar hefur lokið BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Ísland og MBA námi. Einar starfar fyrir Kristinn ehf. og tengd félög. Einar er stjórnarformaður Korputorgs ehf. og Myllunar-Ora ehf. Einar á engan beinan hlut í félaginu sjálfur, en á 22,12% eignarhlut í fjölskyldufyrirtækinu Fram ehf. sem er eini hluthafi ÍV fjárfestingafélags ehf., sem á um 57,7% í félaginu. Einar er jafnframt þriðjungseigandi í MKE ehf. sem á um 0,26% af hlutafé í Ísfélagi (0,27% miðað við atkvæðisrétt). Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Einar háður félaginu og daglegum stjórnendum þess og stórum hluthafa.
Steinunn H. Marteinsdóttir, stjórnarmaður, er fædd 1966. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og með Diplomanám í ferðamálafræði. Steinunn starfar nú hjá Premium ehf. lífeyrisþjónustu eða frá árinu 2012. Hún vann við hárgreiðslustörf frá árunum 1990 til 2002 þar sem hún átti og rak um tíma hárgreiðslustofu. Á árunum 2004 – 2012 vann hún hjá Sparisjóðnum Afl/Arion banka. Steinunn situr í stjórn Þjóðlagaseturs séra Bjarna Þorsteinssonar og hefur verið eigandi Kjólakistunnar ehf. frá 2014. Steinunn á engan hlut í útgefanda en aðilar sem Steinunn tengist fjölskylduböndum eiga 95.145.581 hluti í útgefanda, eða sem nemur 11,62%, í gegnum Martein Haraldsson ehf. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Steinunn háð félaginu, daglegum stjórnendum þess sem og háð stórum hluthöfum.
Agnar er fæddur þann 23. mars 1979. Agnar starfaði hann hjá Kviku eignarstýringu frá 2018-2022 og GAMMA Capital Management á árunum 2009-2018 við stýringu skuldabréfasjóða. Þar áður starfaði hann við skuldabréfamiðlun og áhættustýringu fyrir Kaupþing banka á árunum 2004-2008. Agnar er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og leggur stund á sagnfræði í sama skóla. Agnar er í dag sjálfstætt starfandi fjárfestir og starfar sem framkvæmdastjóri hjá fjárfestingafélaginu ATM ehf. Agnar situr í stjórn Íslandssjóða frá vori 2026.
Guðbjörg er fædd þann 14. mars 1952 í Reykjavík. Guðbjörg hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2001. Hún lauk prófi frá Kennaraháskólanum árið 1976. Guðbjörg situr í stjórn Fastus ehf. og Kaaber-Ísam ehf. Guðbjörg á beint 43.623 hluti í félaginu og á 11,29% eignarhlut í fjölskyldufyrirtækinu Fram ehf. sem er eini hluthafi ÍV fjárfestingafélags ehf., sem aftur á 472.877.741 hluti í útgefanda eða sem nemur um 57,7% af skráðu hlutafé hans. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti er Guðbjörg óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess, en telst háð stórum hluthafa.
Sigríður er fædd 1983 og er framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Sjóvá. Sviðið ber ábyrgð á innheimtu, reikningshaldi, upplýsingatækni og viðskiptagreind. Sigríður Vala er með M.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Sigríður Vala var forstöðumaður hagdeildar Sjóvá árin 2016-2021 ásamt því að sitja í fjárfestinganefnd félagsins. Sigríður Vala starfaði hjá Creditinfo árin 2015-2016 sem forstöðumaður viðskiptastýringar og 2008-2015 í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Sigríður Vala sat í stjórnum HS Veitna hf. 2014-2022 og SÝN hf. 2019-2022. Sigríður Vala situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Sigríður óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess sem og stórum hluthöfum.
Stefán Friðriksson, forstjóri. Hann er fæddur 1963. Stefán er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur verið forstjóri Ísfélagsins frá því í febrúar 2010. Áður starfaði hann hjá Vinnslustöðinni hf. Frá 1997 til og 2010 og hjá Fiskistofu 1992 til 1997. Stefán er eigandi alls hlutafjár í Guddunefi ehf. sem á 1.080.000 hluti í útgefanda eða sem svarar til 0,13% af hlutafé hans
Ólafur H. Marteinsson, aðstoðarforstjóri er fæddur árið 1959, og hefur verið framkvæmdastjóri Ramma hf. frá árinu 1991. Ólafur hefur skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og er Útgerðartæknir frá Tækniskóla Íslands. Ólafur er formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS. Ólafur er eigandi 26,11% hlutafjár í Marteini Haraldssyni ehf. sem á 95.145.581 hluti í útgefanda eða sem svarar til 11,62% af skráðu hlutafé hans.
Jón Páll Kristófersson, sölu- og markaðsstjóri, er fæddur árið 1971. Jón Páll er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri. Hann var rekstrarstjóri hjá Ramma hf og síðar Ísfélagi hf í Þorlákshöfn frá árinu 2000 til 2024. Jón Páll á beinan eignarhlut í eigin nafni alls 958.140 hluti, eða sem svarar til 0,12% af skráðu hlutafé félagsins. Enn fremur er Jón Páll eigandi alls hlutafjár í Rúnu ehf. sem á 360.000 hluti í félaginu, eða sem svarar til 0,04% af skráðu hlutafé þess.
Unnar Pétursson, fjármálastjóri, er fæddur 1965. Unnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur verið fjármálastjóri Ramma hf. frá 1993. Unnar er eigandi alls hlutafjár í Karlsbergi ehf. sem á 6.575.074 hluti í útgefanda. eða sem svarar til 0,8% af skráðu hlutafé hans.
Örvar Guðni Arnarson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, er fæddur árið 1976. Örvar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hann var fjármálastjóri Ísfélags Vestmannaeyja frá 2011-2023. Örvar er eigandi alls hlutafjár í L21 ehf. sem á 540.000 hluti í útgefanda, eða sem svarar til 0,07% af skráðu hlutafé hans.
Sækja má merki félagsins í PNG og PDF formi hér. PDF formið inniheldur RGB, CMYK, og PANTONE..
Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga