Ísfélagið hefur skrifað undir samfélagsstefnu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og með því markað sér stefnu í samfélagsábyrgð sem grundvallast á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Starfsemi félagsins er umfangsmikil og heyrir undir fjölmörg heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Ísfélagið horfir þó sérstaklega til fjögurra heimsmarkmiða. Þau markmið snúa að jafnrétti kynjanna, nýsköpun, ábyrgri neyslu og framleiðslu og lífi í vatni. Nánar má kynna sér stefnuna hér: Ábyrgur sjávarútvegur (sfs.is)
Jafnrétti kynjanna
Ísfélagið telur að gott starfsfólk sé forsenda fyrir velgengni til framtíðar. Félagið leggur sig fram við að búa til örugga vinnustaði þar sem hæft og traust starfsfólk vinnur í samræmi við markmið félagsins í umhverfis- og samfélagsmálum. Ísfélagið leggur áherslu á að störf sem auglýst eru hjá félaginu séu ekki skilgreind sem karla- eða kvennastörf. Ennfremur hefur félagið fengið jafnlaunavottun.
Nýsköpun og uppbygging
Ísfélagið leggur mikla áherslu á að sinna nýsköpun og fjárfestingum til að draga úr áhrifum á umhverfið og auka verðmæti. Með nýsköpun er lagður grunnur að verðmætum störfum hjá félaginu og tengdum atvinnugreinum. Aukin þekking, ný tækni og bættir ferlar bæta meðferð á afurðum félagsins og auka nýtingu. Samhliða því leitast félagið við að draga úr sóun og nýta tækifærin sem skapast með aukinni þekkingu.
Ábyrg neysla og framleiðsla
Ísfélagið leggur áherslu á að framleiða matvæli með ábyrgum hætti. Allt hráefni félagsins er nýtt og það sem til fellur af framleiðslu félagsins í fiskvinnslu er nýtt í framleiðslu á mjöl og lýsi
Líf í vatni
Ísfélagið leitar stöðugt leiða til að draga úr áhrifum af starfseminni á umhverfið. Það er hagsmunamál allra að ástand fiskistofna sé sjálfbært og tryggja þannig að sjávarútvegur verði áfram grunnstoð í samfélaginu. Líf í vatni og virðing fyrir vistkerfi hafsins er grundvöllur fyrir því að við getum stundað veiðar um ókomna tíð.
Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar isfelag [hja] isfelag.is Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga