[ ]

Ársskýrsla

Ísfélags VESTMANNAEYJA hf.

2022

Efnisyfirlit










Starfsemi

Ávarp framkvæmdarstjóra

Starfsemi Ísfélags Vestmannaeyja hf. gekk vel á árinu 2022 og var það eitt besta rekstrarár félagsins frá upphafi. Loðnuvertíðin var félaginu gjöful þrátt fyrir válynd veður og erfiðar aðstæður á miðunum. Síldarvertíðin gekk afar vel, en töluverður samdráttur varð í bolfiskveiðum aðallega vegna alvarlegrar vélarbilunar í togara félagsins, Ottó N. Þorlákssyni VE. 

Í lok árs 2022 var skrifað undir samkomulag um sameiningu Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. Stjórnir beggja félaganna telja að mörg tækifæri séu fólgin í sameiningu félaganna, m.a. til sóknarfæra og til að styrkja rekstrargrundvöll þeirra til framtíðar. Sameinað félag mun bera nafnið Ísfélagið hf. Fyrir liggur að nýtt sameinað félag stefnir á skráningu á hlutabréfamarkað sem veitir félaginu tækifæri til frekari vaxtar.

Innrás Rússlands í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Úkraína var fyrir innrásina einn af stærstu kaupendum frosinna uppsjávarafurða frá félaginu. Á þessum hörmungartímum hefur Ísfélagið stutt dyggilega mannúðarsamtök sem starfa þar í landi. 

Orkumál í sjávarútvegi hafa verið mikið til  umræðu undanfarin ár. Það er mikilvægt fyrir sjávarútveginn að taka þátt í þeirri umræðu og leita leiða til að draga úr losun koltvísýrings í starfseminni. Fyrir Ísfélag Vestmannaeyja hf. er það mikil áskorun. Starfsemi félagsins fer að mestu fram á starfsstöðvum sem búa við mjög takmarkað framboð af endurnýjanlegum orkugjöfum. Græn orka er ekki fyrir hendi, en von félagsins er að á næstu árum geti félagið hætt að nota olíu í fiskimjölsverksmiðjum félagsins og í staðinn komi raforka. Ennþá hafa ekki komið fram raunhæfar lausnir fyrir orkuskipti í stærri skipum, en þegar slíkar lausnir liggja fyrir, sem bæði eru hagkvæmar og raunhæfar, er ljóst að félagið mun ekki láta sitt eftir liggja.

Ársskýrsla þessi er nú gefin út í annað skiptið. Í skýrslunni er ætlunin að varpa ljósi á starfsemi félagsins í efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum þáttum. 

Stefán Friðriksson, framkvæmdarstjóri Ísfélags Vestmannaeyja hf.

Um skýrsluna

Ísfélagið hf. leggur mikla áherslu á að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki og hafa jákvæð áhrif hvað varðar starfsemina og nánasta samfélag fyrirtækisins. Við hönnun mælikvarða voru viðmið GRI (Global Reporting Initiative) um samfélagslega ábyrgð höfð til hliðsjónar.

Tilgangur útgáfu skýrslunnar er að gera grein fyrir starfsemi fyrirtækisins, veita upplýsingar um umhverfisáhrif, ásamt því hvernig fyrirtækið hefur áhrif á samfélag, mannauð og efnahag.

Skýrslan nær yfir árið 2022,  og eru allar tölur og mælikvarðar settir fram samkvæmt bestu vitund. Upplýsingar í skýrslunni ná utan um starfsemi Ísfélags Vestmannaeyja hf.

Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf. hefur samþykkt útgáfu skýrslunnar og frekari upplýsingar um gerð skýrslunnar veitir framkvæmdarstjóri félagsins.

Áfangar ársins 2022

Viljayfirlýsing um sameiningu Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Rammans hf.

Stjórnir félaganna Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. skrifuðu undir viljayfirlýsingu um sameiningu beggja félagana í nýtt félag undir heitinu Ísfélagið hf. Tilkynningin var send út þann 29. desember 2022. 

Ný starfsmannaaðstaða á Þórshöfn

Hafin var vinna við uppbyggingu nýrrar starfsmannaaðstöðu á Þórshöfn. Byggingin verður þar sem nú er port við frystihús félagsins. Byggingin verður á tveimur hæðum og mun rúma nýja búningsaðstöðu fyrir starfsmenn, nýja kaffiaðstöðu og skrifstofur starfsmanna. Áætlað er að aðstaðan verði tilbúin á síðari hluta 2023.

Árið í hnotskun

Um Ísfélag Vestmannaeyja hf.

Ísfélag Vestmannaeyja hf. var stofnað 1. desember árið 1901 og er elsta starfandi hlutafélag landsins. Tilgangur félagsins var að byggja og reka íshús til geymslu á beitu og vinna þannig bæði útgerðarmönnum og bæjarfélaginu gagn.

Ísfélag Vestmannaeyja hf. er sjávarútvegsfyrirtæki með starfsstöðvar í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn á Langanesi og hefur verið leiðandi afl í íslenskum sjávarútvegi síðustu 120 árin. Ísfélagið gerir  út fjögur uppsjávarskip, tvö bolfiskskip og einn krókabát. Árið 2022 voru starfsmenn hjá fyrirtækinu u.þ.b. 287 talsins og þar af voru um 87 starfsmenn á sjó. Félagið rekur tvö öflug frystihús, annars vegar í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn á Langanesi. Ásamt því rekur félagið tvær mjölverksmiðjur í sömu bæjarfélögum.

Félagið á hlut í sölufyrirtækjunum Iceland Pelagic ehf. og Stormum ehf. sem selja stóran hluta afurða félagsins um heim allan.

Stjórnarhættir

Stjórnarhættir félagsins taka mið af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Stjórnin mótar stefnu, setur markmið og skilgreinir lykiláhættu í rekstri Ísfélagsins og með hvaða hætti brugðist verði við þeirri áhættu sem um ræðir. Stjórnendur hafa virkt eftirlit með áhættuþáttum sem hafa áhrif á rekstur og afkomu félagsins. Áhættustýring og innra eftirlit er samofið allri starfsemi félagsins með þann tilgang að gera auðveldara fyrir stjórnendur að hafa umsjón með rekstrinum. Stjórnin sér til þess að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits sem er formlegt, skjalfest og virkni þess reglulega yfirfarin. Stærstu áhættuþættir í rekstri Ísfélagsins eru tengdir tekjustreymi, fjármögnum og gengis- og vaxtaáhættu. Stjórnendur hafa heimild til að gera framvirka samninga til að takmarka gengis- og vaxtaáhættu.

Ársreikningur fyrirtækisins er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðs­reikningsskilum. Ársreikningurinn er settur fram í Bandaríkjadal (USD) sem er starfrækslu­gjaldmiðill félagsins.

Á stjórnarfundi í desember 2022 ákvað stjórn félagsins að Ísfélag Vestmannaeyja hf. myndi frá og með 1. janúar 2023 nýta sér heimild í 92. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, til þess að gera reikningsskil sín í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS. 

Ísfélag Vestmannaeyja hf. telst nú sem eining tengd almannahagsmunum, sbr. e. lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.  Endurskoðunarnefnd var kosin á árinu 2022.

Skipurit

Stjórn og stjórnendur

Stjórn fer með æðsta vald í málefnum Ísfélagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstrinum. Stjórn leggur áherslu á góða stjórnarhætti og að starf stjórnar og félagsins sé ávallt samkvæmt lögum, reglum og góðum viðskiptaháttum. Stjórnin er skipuð fjórum aðalmönnum.

Að loknum aðalfundi sem kýs stjórn félagsins kemur stjórn saman til fundar og kýs sér formann. Formaður stjórnar kemur fram fyrir hönd félagsins út á við nema formaðurinn ákveði annað. Stjórnin kemur reglulega saman samkvæmt ákvörðun stjórnarformanns og er formanni skylt að boða til fundar ef einhver stjórnarmanna eða framkvæmdarstjóri krefst þess. Stjórnin ber ábyrgð á að nægilegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna félagsins og fylgjast með áætlunum. Stjórnin fer árlega yfir framkvæmd hlutverks síns, verklag og starfshætti ásamt frammistöðu stjórnarformanns og framkvæmdarstjóra með það að markmiði að bæta skilvirkni og eftirlit stjórnar. Stjórnin sér um að gæta hagsmuna allra hluthafa og gæta jafnræðis þeirra á milli ásamt því að vera leiðandi við stefnumörkun félagsins til framtíðar. 

Daglegur rekstur er í höndum stjórnenda Ísfélagsins í samræmi við stefnu og ákvarðanir stjórnar. Framkvæmdarstjóri félagsins ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og fer með ákvörðunarvald í málefnum sem ekki eru falin öðrum eða falla undir verksvið stjórnar eðli málsins samkvæmt.

Stjórn

Gunnlaugur er fæddur þann 29. desember árið 1958. Gunnlaugur er stjórnarformaður Ísfélagsins og hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 1991. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1978 og cand. jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1986. Gunnlaugur er stjórnarformaður Lýsis hf. og Ó. Johnson og Kaaber – ÍSAM.

Einar er fæddur þann 23. ágúst árið 1977 í Reykjavík. Einar tók sæti í stjórn Ísfélagsins árið 2013. Einar hefur lokið BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Ísland og MBA námi. Einar starfar fyrir Kristinn ehf. og tengd félög. Einar er stjórnarformaður Korputorgs hf. og Myllunar hf.

Guðbjörg hefur setið í stjórnfélagsins frá árinu 2001. Guðbjörg er fædd þann 14. mars 1952 í Reykjavík. Hún lauk prófi frá Kennaraháskólanum árið 1976. Guðbjörg situr í stjórn Fastus ehf. og Kaaber-Ísam ehf.

Sigurbjörn er fæddur þann 31. júlí árið 1959 í Reykjavík. Sigurbjörn tók sæti í stjórn Ísfélagsins árið 2009. Hann starfar sem lögmaður og eigandi Juris lögmannsstofu og hefur lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands. Sigurbjörn er stjórnformaður Árvaks hf. útgáfufélags Morgunblaðsins.

Framkvæmdarstjórn

Stefán er fæddur í Reykjavík 31. október 1963. Stefán hefur verið framkvæmdastjóri Ísfélagsins frá því í febrúar 2010 og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Stefán situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Iceland Pelagic, Stormar, Fiskmarkaðs Þórshafnar, Fiskmarkað Vestmannaeyja, Félags Uppsjávariðnaðarins og  Útvegsbændafélags Vestmannaeyja.

Örvar fæddist í Vestmannaeyjum þann 2. desember 1976. Örvar er fjármálastjóri félagsins og tók við þeirri stöðu árið 2011. Áður hafði hann starfað hjá Íslandsbanka í fimm ár sem sérfræðingur á lánasviði stærri fyrirtækja og í fyrirtækjaráðgjöf bankans. Örvar útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík árið 2006. Örvar er varamaður í stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja.

Eyþór Harðarson er fæddur 11. júní 1963 í Vestmannaeyjum og starfar sem útgerðarstjóri  félagsins. Eyþór er menntaður rafvirki og rafmagnstæknifræðingur frá Fachhochschule Lübeck í Þýskalandi og lærði rafvirkjun hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Hann hóf störf hjá Ísfélaginu árið 1995 eftir framhaldsnám sem tæknimaður sem breyttist í útgerðastjórastarfið árið 2003. 

Björn Brimar er fæddur þann 23. október árið 1970 í Ólafsfirði og starfar sem framleiðslustjóri í frystihúsi félagsins í Vestmannaeyjum. Björn starfaði áður sem vinnslustjóri á frystitogaranum Höfrungur III hjá HB Granda, nú Brim. Björn er menntaður sjávarútvegsfræðingur. Björn sinnir formennsku í stjórn Rannsóknarþjónustu Vestmannaeyja hf.

Siggeir Stefánsson er fæddur þann 21 desember, árið 1962 í Reykjavík og hefur starfað sem framleiðslustjóri í frystihúsi félagsins á Þórshöfn frá 2002, þar á undan í nokkur misseri í fiskimjölsverksmiðju félagsins á Þórshöfn. Siggeir er menntaður vélstjóri frá Vélskóla Íslands. Hefur einnig lokið námi á vegum útflutningsráð Íslands, um útflutning og hagvöxt og lokið VOGL námi og þar með Verkefnastjórnun á D stigi. Siggeir starfaði sem vélstjóri á sjó um 10 ár og útgerðarstjóri og framkvæmdarstjóri hjá útvegsfyrirtækjum í nokkur ár.

Páll er fæddur þann 24. janúar 1963. Páll tók við starfi verksmiðjustjóra þann 1. febrúar 2007 og var áður framkvæmdarstjóri ÍBV. Páll hefur lokið gagnfræðanámi. Hann situr í stjórn Súlnaskers ehf. og Friðarbóls ehf. 

Rafn er fæddur þann 17. nóvember árið 1957 í Reykjavík. Rafn hefur verið verksmiðjustjóri mjölsverksmiðju félagsins á Þórshöfn síðan 2007. Rafn var vélstjóri á Stakfell ÞH frá 1982 – 1987 og vinnslu- og verksmiðjustjóri fyrir Hraðfrystistöð Þórshafnar frá 1987 til 2007. Rafn er menntaður vélfræðingur.

Stærstu hluthafar

Í árslok 2022 voru hluthafar félagsins 131. Að jafnaði er haldinn einn hluthafafundur á ári, nema upp komi atburðir eða breytingar sem kalla á fleiri. Tíu stærstu hluthafar félagsins eru tilgreindir í eftirfarandi töflu. Upplýsingar um raunverulega eigendur má finna á vefsíðu Fyrirtækjaskráar.

Aðild að samtökum

Ísfélag Vestmannaeyja hf. er aðili að eftirtöldum samtökum:









Félagslegir þættir

Mannauður

Starfsfólk félagsins er ein mikilvægasta auðlind þess og með markvissri mannauðsstjórnun náum við markmiðum okkar á sjó og í landi. Félagið vill bjóða starfsfólki upp á:

  • Skapandi vinnuumhverfi þar sem hvatt er til frumkvæðis og nýsköpunar.
  • Störf séu unnin þar sem fagmennska er í fyrirrúmi.
  • Vinnuumhverfi þar sem starfsmenn koma fram við hvern annan af vinsemd og virðingu.
  • Vinnuumhverfi með uppbyggilegri endurgjöf og upplýsingum sem deilt er með skilvirkum hætti.
  • Starfsstöðvar með góðum starfsanda og jafnrétti.
  • Starfsumhverfi sem er gott og samkeppnishæf kjör.
  • Störf þar sem starfsmenn fá þjálfun og fræðslu við hæfi.
  • Sveigjanleika og jafnvægi milli einkalífs og vinnu.

 

Hjá félaginu voru starfsmenn um 287*  árið 2022. Ísfélag Vestmannaeyja hefur innleitt jafnlaunakerfi sem nær til allra starfsmanna félagsins og byggist jafnlaunastefna fyrirtækisins á henni. Tilgangur með jafnlaunakerfi er að tryggja launajafnrétti innan fyrirtækisins. Stefna félagsins er sú að gæta skuli fyllsta jafnréttis á milli karla og kvenna og að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum samkvæmt lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og lögum nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði og öðrum lögum er snúa að jafnri stöðu karla og kvenna. Þannig er tryggt að mannauður fyrirtækisins nýtist sem best.

Félagið hefur skuldbundið sig til að koma upp, skjalfesta, innleiða og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur staðals IST 85:2012. Stjórnendur skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu. Ísfélagið fór í sína fyrstu jafnlaunaúttekt árið 2020 og síðar viðhaldsúttekt 2021 og árið 2022. Úttektirnar voru framkvæmdar af vottunarstofunni BSI á Íslandi. Í síðustu úttekt fannst 0,3% óútskýrður launamunur. Árið 2021 var óútskýrður launamunur 0,6% og því ljóst að jafnlaunakerfi félagsins er að skila jafnari launum á milli kynja.

Kynjahlutföll eftir störfum*

*á launaskrá í nóvember 2022

Mannréttindi og kjarasamningar

Ísfélag Vestmannaeyja hf. virðir almenn mannréttindi starfsfólks. Félagið virðir einnig rétt allra starfsmanna til félagafrelsis og kjarasamninga. Allir starfsmenn hafa jafnan rétt til starfsþróunar og símenntunar óháð kyni, aldri og uppruna. Einelti, kynferðisleg eða kynbundin áreitni eða ofbeldi er undir engum kringumstæðum liðið eða umborið á vinnustöðum félagsins, hvorki í samskiptum starfsfólks né í samskiptum við starfsfólk verktaka, samstarfsaðila eða viðskiptavini. Ísfélagið hefur sett sér stefnu og reglur til að taka á einelti, áreitni og ofbeldi. Á árinu 2022 barst engin formleg tilkynning um einelti hjá félaginu. Félagið hefur einnig sett sér mannréttindastefnu.

Stefnur

  • Ísfélag Vestmannaeyja hefur sett sér stefnur sem snerta á samfélagslegri ábyrgð og ábyrgri stjórnun. Meðal stefna sem félagið hefur sett sér eru:
  • Mannréttindastefna
  • Siðareglur
  • Stefna gegn mútum og spillingu
  • Stefna um samfélagslega ábyrgð
  • Starfsmannastefna
  • Jafnlaunastefna
  • Persónuverndarstefnu

 

Skoða má stefnur félagsins nánar hér

Fræðsla og uppbygging mannauðs

Þekking og hæfni starfsmanna skiptir miklu máli fyrir mannauð félagsins og starfsemi þess.  Ísfélag Vestmannaeyja hf. býður upp á símenntun sem eflir starfsfólk í starfi og eykur starfsánægju. Fræðslustarf er með ýmsum hætti hjá félaginu s.s. nýliðafræðsla, öryggisnámskeið, ásamt reglubundnum sí- og endumenntunarnámskeiðum á sviði öryggismála sjómanna. Fræðslu- og aðgerðaráætlun er gerð á hverju ári á öllum starfsstöðvum félagsins. Á árinu ákveð félagið að fá inn fræðslustjóra að láni í samvinnu við Landsmennt. Fræðslustjórinn heimsækir allar starfsstöðvar félagsins og mun í lok verksins skila fræðsluáætlun, stjórnendamati og skýrslu um fræðslumál félagsins. Í framhaldi mun félagið vinna eftir þeirri áætlun í fræðslumálum fyrir starfsfólk og stjórnendur.

Slys

Á skipum félagsins urðu 2 fjarveruslys og 2 slys voru skráð í landvinnslu samtals á árinu 2022. Flest slysin voru minniháttar en félagið mun áfram leggja mikla áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og markvissa vinnu í öryggismálum. Hjá félaginu starfa öryggisnefndir í hverri starfsstöð sem fylgjast með öryggismálum og gera úrbætur þegar þeirra er þörf. Enn fremur gera öryggisnefndir áhættumat á hverju ári og sinna eftirlitsskyldu. Félagið hefur tekið upp skráningakerfið ATVIK, sem er rafrænt slysaskráningakerfi fyrir útgerðir. Tæknilegar lausnir flækja innleiðingu en gert er ráð fyrir að kerfið verði að fullu innleitt í öll skip félagsins um mitt ár 2023.








Veiðar og vinnsla

Fiskveiðar og útgerð

Til að viðhalda góðu jafnvægi fiskistofna og sporna við ofveiði er mikilvægt að stunda eingöngu sjálfbærar veiðar. Ísfélagið leggur mikið upp úr gæðum hráefnis og til þess að tryggja þau er stöðugt gæðaeftirlit, bæði um borð í skipunum og í landi. Ábyrgar veiðar hafa hvatt til nýsköpunar þar sem áhersla er lögð á betri nýtingu á aflanum og aukna verðmætasköpun og minni kostnaðar, sem skilar sér til samfélagsins. Afli félagsins á árinu 2022 var um 145 þúsund tonn.

Ísfélag Vestmannaeyja hf. er aðili að Sjálfbærum fiskveiðum (Iceland Sustainable Fisheries) og er fyrirtækið með MSC vottun á afurðum sínum eftir því sem við á. 

Uppsjávarvinnsla

Í Vestmannaeyjum er rekið öflugt frystihús sem er sérhæft til vinnslu á uppsjávarafla s.s. loðnu, síld og makríl. Frystigetan er um 500 tonn á sólarhring. Á milli uppsjávarvertíða er unninn bolfiskur í húsinu í frystar og ferskar afurðir. Á Þórshöfn er rekið öflugt frystihús þar sem unninn er bolfiskur og uppsjávarfiskur. Á myndinni sést framleiðsla uppsjávarafurða eftir tegundum frá árinu 2016. 

Bolfiskvinnsla

Allar bolfiskafurðir félagsins eru framleiddar í frystihúsum félagsins á Þórshöfn og í Vestmannaeyjum. Heildarmagn framleiðslu á árinu 2022 var um 2.700 tonn.

Afurðir voru seldar til 7 landa en mest er selt til  Frakklands, Spánar og Englands.

Fiskimjölsverksmiðjur

Félagið rekur tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn. Framleiðslugeta verksmiðjunnar í Vestmannaeyjum er um 1.200 tonn af hráefni á sólarhring. Framleiðslugeta verksmiðjunnar á Þórshöfn er rúm 900 tonn af hráefni á sólarhring. Við framleiðslu á fiskimjöli þarf að framleiða heita gufu og keyra gríðarstóra þurrkara. Í báðum verksmiðjum er notuð endurunnin úrgangsolía sem er safnað um land allt, hreinsuð og svo blönduð. Ef ekki væri fyrir þessa ráðstöfun þyrfti að flytja úrgangsolíuna úr landi til brennslu.

Á myndinni hér að neðan má sjá framleiðslu á mjöli og lýsi hjá fyrirtækinu síðastliðin sjö ár. Mjöl og lýsi sem félagið framleiðir fer að stærstum hluta til fóðurframleiðslu fyrir laxeldi í Noregi og á Skotlandi.

Gæðamál

Ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur það að markmiði að vera fyrirmynd um ábyrga viðskiptahætti og starfa í sátt við umhverfið og samfélagið. Mikil áhersla er á að umgangast hafið og auðlindir þess af virðingu og nýta þær með sjálfbærum hætti og í samræmi við ráðgjöf vísindamanna hverju sinni. Í öllum rekstri félagsins er lögð áhersla á að starfa samkvæmt gildandi lögum og reglum. Félagið starfar á alþjóðlegum mörkuðum og selur afurðir sínar í gegnum sölufyrirtækin Storma ehf. og Iceland Pelagic ehf. um allan heim. Vörur félagsins eru frosnar uppsjávarafurðir, bolfiskur, mjöl og lýsi. Allar afurðir félagins eru framleiddar eftir viðurkenndum stöðlum sem tryggja eiga rekjanleika og gæði afurðanna. Allar starfsstöðvar eru undir eftirliti Matvælastofnunar. Hér að neðan má sjá hvernig vottanir skiptast eftir starfsstöðvum.









Fjármál

Rekstur og efnahagur

Rekstur Ísfélagsins gekk vel á árinu 2022. Rekstrarumhverfi félagsins er síbreytilegt og ræðst ekki síst af sveiflum í stærð nytjastofna. Hagnaður félagsins nam tæpum sjö milljörðum króna á árinu 2022 og eiginfjárhlutfall félagsins jókst úr 58% í 68%. 

 

Skattspor

Verðmætasköpun félagsins hefur víðtæk samfélags- og efnahagsleg áhrif líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Skattsporið gefur heildstæða mynda af öllum opinberum gjöldum og sköttum sem greiddir eru til hins opinbera vegna starfsemi félagsins. Ísfélagið greiddi 3.079 milljónir króna í skatta og gjöld á árinu 2022 og innheimti 1.553 milljónir króna á árinu 2022 af starfsmönnum fyrir ríkissjóð. Samtals var því skattspor starfseminnar 4.632 milljónir króna.

Umhverfi

Umhverfi

Ísfélagið hefur hafið vinnu við að greina umhverfisáhrif félagsins og meta hvar félagið getur orðið sjálfbærari í umhverfismálum. Ísfélagið fylgist með tækniframförum og nýsköpun í orkumálum og hefur fjárfest í tæknilausnum sem auka sjálfbærni starfseminnar og mun gera áfram.

Umhverfisáhrif Ísfélagsins liggja að langmestu leyti í eldsneytisnotkun fiskiskipa félagsins og olíunotkun í fiskmjölsverksmiðjunum. Óraunhæft er í dag að keyra verksmiðjur félagsins á rafmagni, þar sem ónæg orka er til staðar í þeim bæjarfélögum sem verksmiðjur félagsins eru staðsettar. Fjárfest hefur verið til að takmarka áhrif fiskmjölsverksmiðja á umhverfið og keyra þær nú nær alfarið á endurunninni olíu.

Skip félagsins nota mikið eldsneyti og ekki er komin fram raunhæf lausn á orkuskiptum fiskiskipa. Við endurnýjum flotans er lögð áhersla á að kaupa sparneytnari skip og eins lögð áhersla á að skip félagsins séu keyrð á hagkvæman hátt og eftir fremsta megni reynt að lágmarka olíunotkun. Aðstæður við veiðar geta þó verið mjög breytilegar og oft þarf að sigla langt til og frá miðunum sem hefur mikil áhrif á notkun eldsneytis. Hér er áhrifaþátturinn helst breytilegt  göngumynstur og veiðanleiki stofnanna. Ísfélagið stefnir á að setja sér sérstaka umhverfisstefnu á árinu 2023.

Landvinnsla

Helsti umhverfisþáttur landvinnslunnar er eins og áður segir, fiskmjölsverksmiðjur félagins. Áhersla hefur verið lögð á að minnka hlutfall svartolíu við keyrslu verksmiðjanna og auka hlut endurunninnar olíu. Framleiðsla á endurunninni olíu felst í hreinsun á úrgangsolíu sem safnað er um land allt. Ef ekki væri fyrir þessa ráðstöfun þyrfti að flytja þessa olíu úr landi til brennslu. Slíkt myndi fela í sér töluvert meira kolefnisspor en brennsla með þessum hætti hér á landi.

Á árinu 2013 var tekin í notkun í fiskmjölverksmiðju félagsins í Vestmannaeyjum eitt öflugasta hreinsivirki á Íslandi. Þar er allt blóðvatn hreinsað og síðan unnið úr því lýsi og mjöl. Þetta á við um allt frárennsli sem kemur bæði frá fiskvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og mjölsverksmiðjunni. Með þessu eru umhverfisáhrif frárennslis félagsins í Vestmannaeyjum lítil, en frá félaginu rennur nú einungis blóðlitað vatn og takmarkað magn af lífrænum leifum.

Á grafinu hér að neðan má sjá samdrátt í notkun á olíu í verksmiðjum félagsins sem skýrist mest af loðnuleysi á árunum 2019 og 2020. Á árinu 2022 var stór loðnuvertíð sem skýrir mikla aukningu á olíunotkun í verksmiðjum félagsins. Framleitt magn á hvert olíukíló sveiflast helst eftir tegundasamsetningu. Félagið framleiddi rúm fimm kíló af mjöli og tvö kíló af lýsi á hvern olíulítra sem brenndur var á á árinu 2022.

Fiskveiðar

Mikilvægt er að tryggja sjálfbæra nýtingu fiskstofna umhverfis landið og umgangast auðlindina af ábyrgð og með virðingu. Upptaka núverandi fiskveiðistjórnunakerfis Íslendinga er í sjálfu sér stærsta umhverfisskref sjávarútvegsins. Kerfið tryggir hagkvæmni í greininni, kemur í veg fyrir ofveiði og ýtir undir hagkvæmni. Hagræðing í sjávarútveginum hefur skilað hagkvæmari veiðum, auknum gæðum afurða og lækkun kolefnisspors sjávarútvegsins. Skipum fækkað, þau eru stærri og hagkvæmari og áhersla lögð á að hámarka verðmæti afla, frekar en veitt magn. Ísfélagið gerði út sjö skip á árinu 2022. Fjögur uppsjávarskip, tvo togara og einn línubát.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur eldsneytisnotkun uppsjávarskipa aukist  mikið frá árinu 2019 en lækkað á móti í bolfiskskipum félagsins. Aukningin í eyðslu uppsjávarskipa skýrist helst af því að töluvert lengra var á makríl og kolmunnamiðin árin 2020 og 2021 en áður, en árið 2022 skýrist einnig af stórri loðnuvertíð. Afli á olíulítra hefur farið hækkandi á bæði uppsjávarskipum og bolfiskskipum félagsins. Hafa skal í huga að ýmsar breytur geta haft töluverð áhrif á olíunotkun skipa milli tímabila, s.s. samsetning afla, veiðimynstur, veður og ástand stofna.

 

Endurvinnsla og sorphirða

Skip félagsins koma með allan úrgang flokkaðan til hafnar og er hann meðhöndlaður samkvæmt Marpol reglugerð. Hvert skip heldur úti sorpdagbók. 

Árið 2022 var heildarmagn frá starfseminni í Vestmannaeyjum af úrgangi 116 tonn og var 45% flokkað. Af flokkuðu sorpi er lífrænn úrgangur 1,1 tonn, óvirkur úrgangur 7,8 tonn, ólitað timbur 33 tonn, litað timbur 2,7 tonn og blandað endurvinnsluefni 18,6 tonn. 

Árið 2022 var heildarmagn úrgangs vegna starfseminnar á Þórshöfn 113 tonn og var um 53% flokkaður. Af flokkuðu sorpi var timbur 36 tonn, grænt endurvinnsluefni 3,2 tonn og bylgjupappi 12,7 tonn.

 

Hringrásarhagkerfið

Hringrásarhagkerfið er hagkerfi þar sem leitast er við að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi með áherslum sem tryggja að hægt sé að viðhalda verðmætum auðlinda eins lengi og mögulegt er. Markmiðið er að lágmarka auðlindanotkun og þar með úrgangsmyndun. Hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins er nokkuð margþætt og nær einnig til þess að endurmeta og endurskilgreina lífsgæði. Helstu aðgerðir sem tryggja að auðlindum sé haldið í hagkerfinu eru að deila, gera við, endurnota, endurframleiða og endurvinna.

Endurunnin olía 

Einungis er notuð endurunnin olía til að keyra fiskimjölsverksmiðjur félagsins. Endurunnin olía er hreinsuð úrgangsolía, aðallega smurolía og glussi. Með því að nota endurunna olíu sparast u.þ.b. þrjú þúsund tonn af innflutningi á olíu og á sama tíma sparast sama magn í útflutningi. Umrædd olía er endurunnin samkvæmt viðurkenndum stöðlum og fellur inn í hringrásarhagkerfið, þar sem um er að ræða úrgang sem breytt er í vöru og hægt að nota þessa endurunnu vöru á þann hátt að hún valdi ekki verri umhverfisáhrifum en sambærileg vara á markaði.

Veiðafæraúrgangur

Öllum veiðafæraúrgangi er skila til endurvinnslu eða endurnýtingar. Á árinu 2022 skilaði félagið um 71 tonnum af veiðafæraúrgangi til endurvinnslu í gegnum skilakerfi SFS

Umhverfisuppgjör

Ísfélagið birtir hér í annað sinn umhverfisuppgjör félagsins. Tölurnar eru byggðar á bestu fáanlegu upplýsingum.

Heildarolíunotkun skipa félagsins var rúmlega 8 milljónir lítra sem losaði um 22 þúsund tonn af CO2 ígildum. Heildarveiðar skipanna var rúmlega 141 þúsund tonn. 

Hlutur uppsjávarskipa af losun er um 17 þúsund tonn og þegar skoðuð er orkukræfni uppsjávarskipa má sjá að uppsjávarskip þarf 52 lítra af olíu til að veiða eitt tonn af fiski. Bolfiskskip nota á sama tíma 243 lítra af olíu til að veiða sama magn. 

Hafa skal í huga að ýmsar breytur geta haft töluverð áhrif á olíunotkun skipa milli tímabila, s.s. samsetning afla, veiðimynstur, veður og ástand stofna.

Umhverfisuppgjör

Tilvísunartafla

Tangagata 1 · 900 Vestmannaeyjar
Sími: +354 488 1100 · isfelag [hja] isfelag.is
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga

fylgdu okkur

© 2022 ÍSFÉLAG VESTMANNAEYJA HF. - All Right Reserved

is_ISIS